Houston borin til grafar í dag

Whitney Houston. Mynd: NordicPhotos/AFP.

Útfarargestir eru byrjaðir að streyma til Newark í New Jersey þar sem söngkonan Whitney Houston verður borin til grafar síðar í dag. Búist er við að um 1500 ættingjar og vinir söngkonunnar muni vera við jarðarförina.

Öryggisgæsla á svæðinu er mikil, en aðdáendum söngkonunnar verður haldið frá kirkjunni þar sem útförin fer fram. Sýnt verður frá athöfninni beint á Internetinu. Margar stjórstjörnur munu láta sjá sig og á meðal þeirra sem munu koma fram eru Stevie Wonder og Aretha Franklin. Kevin Costner, sem lék á móti Houston í kvikmyndinni Lífverðinum verður á meðal þeirra sem flytja minningarorð um söngkonuna dáðu. Houston verður borin til grafar í Fairview-kirkjugarðinum, og mun þar hvíla við hlið föður síns.

Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is

Tilkynna um bilaða upptöku