Hótelrými á Akureyri tvöfaldast

Frá Akureyri.

Hótelrými á Akureyri mun tvöfaldast gangi öll uppbyggingaráform eftir. Ferðamálafræðingur varar við of hraðri uppbyggingu.

Eins og greint hefur verið frá í fréttum RÚV eru áform uppi um að breyta Sjallanum á Akureyri í 90 herbergja hótel. Eins er gert ráð fyrir 100 herbergja hóteli á Drottningarbrautarreitnum svokallaða og þá verða 37 ný herbergi tekin í notkun hjá Icelandair hótelinu í sumar. Í Göngugötunni verður opnað gistiheimili fyrir 100 manns í sumar og þá hefur verið sótt um gistileyfi fyrir minnst 15 íbúðir í bænum sem bíða umsagnar eftirlitsaðila. 

Edward H. Huijbens, forstöðumaður Rannsóknarmiðstöðvar ferðamála, segir að vissulega sé uppgangur í ferðaþjónustunni. Það sé mikið að gera á Höfuðborgarsvæðinu en straumurinn skili sér ekki eins vel út á land. „En ég held að það sé ekki innistæða akkúrat núna fyrir eins hraðri og mikilli uppbyggingu á gistirými og er í kortunum,“ segir hann.

Nýting á því gistirými sem fyrir er á Akureyri er einungis 35% á ársgrundvelli en að sögn Edwards verður að horfa til fjárfestingarinnar á heilsársgrunni þegar auka á við gistirými. Hann hefur áhyggjur af því að farið verði of geyst í uppbyggingunni en miðað við þær hugmyndir sem settar hafa verið fram mun hótelrýmið í bænum tvöfaldast.

Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is

Flokkar

Innlent, Norðurland

Tilkynna um bilaða upptöku