Hnífsstunga við Höfðatún
Fyrst birt: 28.07.2012 23:37, Síðast uppfært: 29.07.2012 07:28

Þrír menn voru handteknir á laugardagskvöld í tengslum við hnífsstungu sem átti sér stað við Höfðatún um áttaleytið. Þetta kemur fram á mbl.is.
Maðurinn sem fyrir árásinni varð er ekki talinn alvarlega slasaður en var fluttur á slysadeild. Mennirnir eru milli tvítugs og þrítugs og búsettir hér á landi en af erlendu bergi brotnir. Málsatvik eru óljós en hinir handteknu verða yfirheyrðir fljótlega.
Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is













