Hlýtur norræn tónlistarverðlaun

Flokkar: Innlent, Menning
Anna Þorvaldsdóttir.


  • Prenta
  • Senda frétt

Tónlistarverðlaun Norðurlandaráðs í ár hlýtur Anna Þorvaldsdóttir fyrir verk sitt Dreymi. Anna fimmti Íslendingurinn til að hljóta þau. Þau verða afhent í Helsinki í nóvember.

Í rökstuðningi dómnefndar segir að Dreymi opni veröld sinfóníunnar á óvenjulegan og nýskapandi hátt. Upphaf þess og lok hljómi utan tíma, myndi hringrás sem  minni á norrænar goðsagnir og nátttúrutrú. 

„Þetta er náttúrulega gríðarleg viðurkenning og frábært en ennnþá svolítið óraunverulegt en auðvitað bara hvatning og ég er bara í skýjunum," segir Anna. 

Hún sækir innblástur fyrir tónlistina í náttúruna og notast við hlutföll og flæði í náttúrunni. „Það er þaðan sem innblásturinn kemur inn en tónlistin kemur auðvitað innanfrá," segir hún.

Anna hefur verið að semja frá því að hún var pínulítil. „Ég man alltaf eftir mér að búa til lög en svo byrjaði ég að skrifa tónlist á nótur þegar ég var 19 ára og síðan hef ég ekki getað hætt og hún bara tók yfir líf mitt," segir hún.

Verðlaunin eru 350 þúsund danskar krónur, um sjö og hálf milljón íslenskra. Þau verða afhent í Helsinki í nóvember.

Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is

Tilkynna um bilaða upptöku