Hlynur með 19 stig fyrir Sundsvall
Fyrst birt: 10.02.2012 20:21, Síðast uppfært: 10.02.2012 20:21

Hlynur Bæringsson skoraði 19 stig fyrir Sundsvall í kvöld
Hlynur Bæringsson skoraði 19 stig og tók 5 fráköst fyrir lið Sundsvall Dragons sem vann Helga Má Magnússon og félaga í 08 Stockholm nokkuð örugglega 89-67 í sænsku úrvalsdeildinni í körfuknattleik í kvöld.
Jakob Örn Sigurðarson skoraði 10 stig og tók 3 fráköst fyrir Sundsvall sem var mun sterkara í leiknum en Pavel Ermolinskij er enn frá vegna meiðsla. Þá skoraði Helgi Már 14 stig fyrir 08 Stockholm og tók 7 fráköst. Sundsvall Dragons er nú í þriðja sæti deildarinnar en 08 Stockholm í því áttunda.
Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is
Tilkynna um bilaða upptöku







