Hljóð datt út hjá um 20 löndum

Vinir Sjonna stóðu sig vel á sviðinu.
Eins og áhorfendur Söngvakeppni evrópskra sjónvarpsstöðva urðu varir við datt út hljóð á lýsingu íslenska þularins, Hrafnhildar Halldórsdóttur, á ákveðnum kafla keppninnar í gær. Þetta stafaði af tæknilegum örðugleikum í keppnishöllinni í Düsseldorf í Þýskalandi.
Lýsingar frá þulum duttu út hjá hátt í 20 löndum á mismunandi tímum og í mislangan tíma, þar á meðal hjá Spáni, Noregi og Rússlandi. Auk þess datt út allt hljóð útsendingarinnar á Spáni og Finnlandi þegar norski keppandinn flutti lag sitt. Jon Ola Sand, yfirstjórnandi keppninnar, staðfesti þetta í viðtali við norska ríkisútvarpið. Hann bætti við að jafnvel þótt Norðmenn hefðu fengið fullt hús stiga frá Spáni hefði það ekki dugað til að fleyta þeim áfram í úrslit keppninnar á laugardaginn.
Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is
Tilkynna um bilaða upptöku







