Hlaupið í rénun
Rennsli í Hágöngulóni hefur ekki aukist síðustu klukkustundirnar og hlaupið sem kom úr Köldukvíslarjökli í nótt er í rénun.
Engin merki eru um eldsumbrot undir jöklinum. Vatn streymir nú úr Hágöngulóni niður í Þórisvatn. Ekki er vitað til þess að áður hafi orðið hlaup úr þessum stað í Köldukvíslarjökli, í vestanverðum Vatnajökli, að sögn Steinunnar Jakobsdóttur, jarðeðlisfræðings á Veðurstofu Íslands. Ekki er þó talið að hætta sé á ferðum. Flogið verður yfir jökulinn síðar í dag til að kanna aðstæður.
Sjötíu sentimetra hækkun á vatnsborði Hágöngulóns kom fram á mælum Landsvirkjunar í nótt vegna flóðsins - það þýðir að um 26 gígalítrar hafa streymt niður árfarvegi, undan Köldukvíslarjökli og niður í lónið, á umþað bil átta klukkutímum.
Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is
Flokkar
InnlentTilkynna um bilaða upptöku







