Hlaup í Gígjukvísl
Fyrst birt: 28.01.2012 23:42 GMT, Síðast uppfært: 29.01.2012 06:19 GMT

Gígjukvísl.
Vatnsborð hefur hækkað og leiðni aukist í Gígjukvísl á Skeiðarársandi frá því um hádegi í fyrradag, og nokkuð er um ís í ánni. Sérfræðingar Veðurstofu Íslands telja að hlaupið hafi úr Grímsvötnum. Vatnið í ánni er dökkt að lit og fannst brennisteinslykt af því í gær.
Mælingar sýna ekki mjög mikla hækkun á vatnsborði en líklegt er að áin hafi grafið sig niður og því sé raunveruleg vatnshæð meiri.
Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is







