Hjólreiðamaður slasaðist alvarlega

Safnmynd.

Alvarlegt umferðarslys varð við Dalveg í Kópavogi síðdegis í dag. Gámaflutningabíl var ekið inn á gámasvæði við Dalveg og í veg fyrir hjólreiðamann sem kom niður gangstíg meðfram veginum.

Áreksturinn var mjög harður og slasaðist hjólreiðamaðurinn alvarlega. Hann var fluttur á sjúkrahús með hraði og þarf að gangast undir aðgerð.

Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is

Tilkynna um bilaða upptöku