Hjólreiðamaður fékk hraðasekt
Fyrst birt: 09.06.2011 11:48 GMT, Síðast uppfært: 01.09.2011 15:55 GMT
Sænskur hjólreiðamaður verður að punga út sem nemur 27.000 íslenskum krónum en hann var tekinn á fimmtíu og átta kílómetra hraða í Tranås norðan við Jönköping.
Að sögn sænsku fréttastofunnar TT er þetta í fyrsta sinn sem sektað er fyrir hraðakstur á reiðhjóli í Svíaríki. Reiðhjól er ökutæki segja, sænsk yfirvöld. Hefði Svíinn pedala-glaði hins vegar verið á hjólaskautum gegndi öðru máli, hjólaskautar flokkast undir skótau og í Svíþjóð gilda engar reglur um ferðahraða á fótabúnaði.
Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is







