Hestamenn skattlagðir út úr þéttbýli

Hesthúsahverfið Glaðheimar í Garðabæ.
Fasteignagjöld af hesthúsum í Reykjavík hækkuðu um rúmlega 500 prósent um áramótin. Formaður Landssambands hestamannafélaga óttast að önnur sveitarfélög hækki í kjölfarið og skattleggi þar með hestamenn út úr þéttbýlinu.
Eigendur húsa þurfa að greiða af þeim fasteignaskatta og þar eru hesthúsaeigendur ekki undanskildir. Í Reykjavík var gerð sú breyting um áramótin að hesthús voru flutt úr skattflokki a yfir í skattflokk c og þar með var hætt að skilgreina húsin sem frístundahús. Í staðinn eru þau nú sett í flokk með iðnaðarhúsnæði. Þar með hækkuðu fasteignagjöld úr rúmlega 0,2 prósentum í rúmlega 1,6%.
Haraldur Þórarinsson, formaður Landssambands hestamannafélaga segir þetta þýða 500 prósenta hækkun hið minnsta. Hann óttast að fleiri sveitarfélög fylgi í kjölfarið. „Sveitarfélögin eru að sækja sér tekjur. Þau finna þarna glufu þegar þau fara að lúslesa lögin um fasteignagjöldin og nýta sér hana en um leið eru þau að beita hestamenn misrétti eftir því hvar þeir búa á landinu. Hesthús sem standa í dreifbýli eru flokkuð í a-flokk sem útihús en um leið og þau eru komin inn í þéttbýlið, þá eru þau sett í c-flokk yfir iðnaðarhúsnæði og annað húsnæði," segir Haraldur. Slíkt hafi mikil áhrif á hestamenn. „Þetta skiptir hundruðum þúsunda fyrir fólk hér í þéttbýlinu og eins og þetta lítur út í okkar augum þá eru ríkið og sveitarfélögin að skattleggja hestamenn út úr þéttbýlinu"
Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is
Tilkynna um bilaða upptöku







