Hens hættur í þýska landsliðinu

Pascal Hens hefur leikið sinn síðasta landsleik fyrir Þjóðverja.
Pascal Hens, skyttan kunna hefur gefið út að hann sé hættur með þýska landsliðinu í handknattleik og gefi ekki kost á sér í það framar.
Hens sem hefur verið fyrirliði þýska landsliðsins síðustu misseri gerði upp hug sinn eftir að ljóst varð að Þjóðverjar ættu ekki möguleika á því að komast á Ólympíuleikana í London í sumar.
Árangur þýska landsliðsins hefur ekki verið sem bestur síðustu tvö ár. Sjöunda sæti á nýliðnu Evrópumóti og 11. sæti á heimsmeistaramótinu fyrir ári síðan. Þá er það mikill harmur fyrir þýska handknattleikssambandið að þýska liðið verði ekki með á Ólympíuleikunum.
Pascal Hens er 31 árs og leikur með HSV Hamburg í heimalandinu. Þar hefur Hens leikið frá árinu 2003, en var áður í herbúðum Wallau-Massenheim. Hann á að baki 199 A-landsleiki fyrir hönd Þýskalands og skoraði 565 landsliðsmörk. Hann hefur um langt skeið verið einn vinsælasti íþróttamaður Þýskalands og var lengi vel launahæsti leikmaður þýsku deildarinnar í handknattleik.
Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is
Tilkynna um bilaða upptöku







