Henrik efstur eftir fimm umferðir

Henrik Danielsen er efstur að loknum fimm umferðum
Henrik Danielsen er efstur með 4 vinninga að lokinni 5. umferð Íslandsmótsins í skák sem fram fór í Stúkunni á Kópavogsvelli í kvöld. Henrik gerði jafntefli við Davíð Kjartansson í umferðinni.
Þröstur Þórhallsson er annar með 3,5 vinning eftir jafntefli við Guðmund Gíslason í æsispennandi skák. Bragi Þorfinnsson er þriðji með 3 vinninga eftir jafntefli við Guðmund Kjartansson í lengstu skák umferðarinnar. Dagur Arngrímsson vann ellefufaldan Íslandsmeistara, Hannes Hlífar Stefánsson, en þeir eru báðir á meðal fimm keppenda sem eru í 4.-8. sæti með 2,5 vinning.
Á morgun mætast forystumennirnir Henrik og Þröstur auk þess sem Bragi mætir Degi. Sem fyrr er ákaflega hart barist og ekkert um stutt jafntefli.
Úrslit dagsins:
- Davíð Kjartansson (1,5) - Henrik Danielsen (3,5) 0,5-0,5
- Þröstur Þórhallsson (3,0) - Guðmundur Gíslason (2,0) 0,5-0,5
- Dagur Arngrímsson (1,5) - Hannes Hlífar Stefánsson (2,5) 1-0
- Guðmundur Kjartansson (1,5) - Bragi Þorfinnsson (2,5) 0,5-0,5
- Sigurbjörn Björnsson (2,5) - Stefán Kristjánsson (1,5) 0-1
- Einar Hjalti Jensson (0,5) - Björn Þorfinnsson (1,5) 1-0
Staða mótsins:
1. SM Henrik Danielsen (2504) 4 v.
2. SM Þröstur Þórhallsson (2398) 3,5 v.
3. AM Bragi Þorfinnsson (2421) 3 v.
4.-8. SM Stefán Kristjánsson (2500), FM Sigurbjörn Björnsson (2393), AM Dagur Arngrímsson (2361), SM Hannes Hlífar Stefánsson (2531) og Guðmundur Gíslason (2346) 2,5 v.
9.-10. FM Davíð Kjartansson (2305) og AM Guðmundur Kjartansson (2416) 2 v.
11.-12. AM Björn Þorfinnsson (2416) og Einar Hjalti Jensson (2245) 1,5 v.
Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is












