Helmingur trúir ekki að sorp sé endurunnið

Um helmingur fólks á höfuðborgarsvæðinu dregur í efa að flokkað sorp til endurvinnslu fari í raun og veru þá leið. Dregið hefur úr tiltrú á þessa starfsemi undanfarin ár, en á sama tíma fjölgar þeim sem flokka sorp.
Þetta kemur fram í könnun sem Sorpa lét gera á síðasta ári. Um fjórðungur aðspurðra sagði það frekar eða mjög ótrúverðugt að flokkað sorp færi í endurvinnslu og álíka fjöldi sagði hvorki né, þegar hann var spurður. Hlutfall þeirra sem telja endurvinnslu trúverðuga hefur farið lækkandi síðan 2003, samkvæmt könnunum Sorpu, en það ár töldu yfir 70 prósent það trúverðugt að flokkað sorp færi í endurvinnslu.
Kannanir Sorpu sýna reyndar að endurvinnsla almennings hefur aukist á undanförnum árum en skortur á tiltrú er hins vegar vandamál. Ragna Halldórsdóttir, deildarstjóri hjá Sorpu, viðurkennir að fyrirtækið eigi ærið verkefni fyrir höndum að auka tiltrú almennings á endurvinnslu, ekki síst þegar sveitarfélögin auka þjónustuna.
„Við erum vottað fyrirtæki og gerum það sem við segjumst gera og stöndum föst á því að við setjum allt flokkað í endurvinnslu,“ segir Ragna.
Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is













