Hellisheiði enn lokuð

Hellisheiði.

Hellisheiði er enn lokuð og hefur verið frá því klukkan sjö í gærmorgun. Óvíst er hvenær umferð verður heimil um hana á ný, hugsanlega milli klukkan átta og níu. Það sem helst tefur fyrir þeim sem ryðja veginn um Hellisheiði eru yfirgefnir bílar.

Lögreglan á Selfossi biður eigendur þeirra um að hafa samband við hana og fá upplýsingar um það hvernig best sé að nálgast og sækja þessar bifreiðar.

Af færð er það annars að segja að vegurinn um Þrengsli eru opin, en Mosfellsheiði ófær. Á Vestfjörðum er víða ófært eða vegir lokaðir vegna snjóflóðahættu, hvarvetna er mjög hált. Þá má búast við snjóflóðahættu á Siglufjarðarvegi utan Fljóta með hlýnandi veðri. Flughált er víða í Skagafirði og á Öxnadalsheiði. Hálka eða snjóþekja er á flestum vegum á Austurlandi en flughált á öllu Suðausturlandi.

 Með hlýnandi veðri hlánar á láglendi um suðvestan og vestanvert landið, einnig norðan og norðaustantil. Um leið og blotnar verður hált á vegum.

Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is

Til baka