Helena með 29 stig í sigri Englanna

Körfuknattleikskonan Helena Sverrisdóttir skoraði 29 stig og tók 7 fráköst fyrir lið sitt Good Angels Kosice sem sigraði MBK Región Roznava í úrvalsdeildinni í Slóvakíu um helgina.

Þetta var fimmtándi sigur Helenu og félaga í röð og er liðið efst í deildinni með fjögurra stiga forskot á MBK Ruzomberok sem situr í öðru sæti.

Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is

Tilkynna um bilaða upptöku