Heimila hjónabönd samkynhneigðra

Samkynhneigðir hafa fangað tveimur sigrum síðustu daga. Fyrst var bann við hjónaböndum þeirra í Kaliforníu dæmt ólöglegt svo voru hjónabönd þeirra leyfð í Washingtonríki. Mynd: Nordic Photos/AFP.

Þing Washingtonríkis í Bandaríkjunum samþykkti í gærkvöldi lög sem heimila samkynhneigðum að ganga í hjónaband.

Ríkið er hið sjöunda í Bandaríkjunum sem heimilar hjónabönd samkynhneigðra. Hin eru New York, Connecticut, Iowa, Massachusetts, New Hampshire og Vermont auk höfuðborgarinnar Washington.

Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is

Tilkynna um bilaða upptöku