Harðar sprengjuárásir á Aleppó

Uppreisnarmaður í Aleppó. Mynd: AFP.


  • Prenta
  • Senda frétt

Sýrlandsher hefur gert harðar sprengjuárásir á nokkur hverfi í borginni Aleppó í dag. Uppreisnarmenn hafa reynt að ná yfirráðum í hverfinu Midan síðan í gær, en á móti hefur herinn látið sprengjum rigna yfir Bustan al-Basha þar sem uppreisnarmenn ráða lögum og lofum.

Skortur er á vatni í norðurhluta borgarinnar eftir að vatnsleiðsla skemmdist í átökum hersins og stjórnarandstæðinga í gær. Ekki hefur tekist að gera við hana ennþá. Þjóðarráð Sýrlands segir að sýrlenski kvikmyndagerðarmaðurinn og blaðamaðurinn Tamer al-Awam hafi verið drepinn á fremstu víglínu í Aleppó. Hann var þar við kvikmyndatöku fyrir Frelsisher Sýrlands. Sprengjum hefur einnig verið látið rigna yfir hús í Hanano hverfi. Einnig eru átök í Damaskus, Deir Ezzor og Homs.

Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is

Tilkynna um bilaða upptöku