Hannaði þrívíddarbúnað

Þrívíddarbúnaðurinn. Mynd: Íris Ólafsdóttir.
Ekki er langt þar til hver sem er getur tekið þrívíddarmyndir á venjulega myndavél. Íslensku hugviti er fyrir að þakka að hægt verður að kaupa einfaldan speglabúnað til að festa framan á linsu og vinna þannig þrívíddarmyndir.
Íris Ólafsdóttir er rafmagnsverkfræðingur og áhugaljósmyndari. Hún hefur hannað búnað sem festur er framan á linsu á venjulegri SLR myndavél en hingað til hafa ljósmyndarar þurft að fjárfesta í nokkuð dýrum þrívíddarmyndavélum til að geta unnið myndir í þrívídd.
„Þetta er speglakerfi, þar sem hægra sjónarhorninu er varpað í hægri helming myndarinnar og öfugt. Þá færðu myndir hlið við hlið og úr þessu er hægt að búa til þrívíddarmyndir á því formatti sem þú vilt horfa á það, í þrívíddarsjónvarpi, 3D gleraugum eða hvernig sem þér hentar,“ segir Íris.
Verkefnið fékk styrk frá Tækniþróunarsjóði og er útlit fyrir að þrívíddarbúnaðurinn ásamt forriti verði tilbúinn í haust. Í framhaldinu verður þróaður sambærilegur búnaður fyrir minni myndavélar. En hvernig kviknaði hugmyndin?
„Ég vaknaði upp einn morguninn og vildi prófa að gera þrívíddarmyndir með því að færa myndavél til og leika mér svo í Photoshop að því að gera aðra rauða og hina græna og var svo með fíltera, græna og rauða, af ljóskastara sem við notuðum á diskókúluna í íbúðinni okkar til að skoða útkomuna og út frá því hefur hugmyndin eflaust kviknað,“ segir Íris.
Hugbúnaðurinn sem notaður er við vinnslu myndanna er nú þegar tilbúinn og verður aðgengilegur á netinu innan skamms.
Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is














