Handahófskenndum ákvörðunum lokið

Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra segir verndarsjónarmiðin fá sinn sess í þeirri rammaáætlun sem Alþingi samþykkti í dag. Hún telur að handahófskenndum ákvörðunum um virkjanastaði sé lokið.
Það hefur tekið mörg ár að komast að niðurstöðu um rammaáætlun, það er vernd og orkunýtingu landsvæða. Tillaga umhverfisráðherra sem rædd hefur verið á Alþingi í allan vetur var samþykkt á Alþingi í morgun með 36 atkvæðum gegn 21 og voru allar breytingartillögur felldar.
Forsætisráðherra segir um tímamótasigur í umhverfismálum að ræða. „Nú er þetta loksins í höfn og ég held að þessu fylgi að handahófskenndum ákvörðunum um virkjunarframkvæmdir sé lokið, þær séu að baki, og nú fái verndarsjónarmiðin sess að því er varðar náttúruna. Þarna er verið að vernda mörg dýrmæt og viðkvæm náttúrusvæði með þessari áætlun. Þannig að þetta er sannarlega fagnaðarefni að við erum að ná hér þessum áfanga.“
Þingmenn Sjálfstæðisflokks og Framsóknar hafa gagnrýnt verklagið harðlega og fullyrt að það hafi verið tekið úr sáttaferli og beint í átakaferli. „Hér liggur fyrir pólitískt plagg sem er því miður gríðarleg átök um. Ég óttast að afleiðingin verði sú að það sem hér verður samþykkt í dag muni ekki lifa lengi,“ sagði Sigurður Ingi Jóhannsson, þingmaður Framsóknar.
Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is














