Hamasliði á fund Adbullah konungs

Khaled Meshaal fundar með Abdullah Jórdaníukonungi. Mynd: Nordic Photos/AFP.

Khaled Meshaal, leiðtogi stjórnmálaarms palestínsku Hamas samtakanna, er væntanlegur til Jórdaníu í dag þar sem hann mun ganga á fund Abdullah konungs. Meshaal hefur ekki komið til Jórdaníu síðan hann og aðrir leiðtogar Hamas voru gerðir brottrækir frá landinu fyrir 13 árum.

Síðan þá hafa samtökin haft höfuðstöðvar í Sýrlandi. Vargöldin í Sýrlandi hefur hins vegar skapað ótryggt ástand og talið er að leiðtogar Hamas hafi hug á að flytja starfsemina að hluta aftur til Jórdaníu. Stjórnvöld í Jórdaníu gætu verið opin fyrir þeim hugmyndum þar sem það myndi skapa betri tengsl við íslamista. Áhrifamáttur íslamista fer hratt vaxandi í arabaheiminum eftir arabíska vorið svokallaða; öldu mótmæla og uppreisna sem gengið hefur yfir miðausturlönd og norðanverða Afríku.

Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is

Til baka