Halldór með nauma forystu-myndband

Halldór Helgason, snjóbrettakappi, er kominn í úrslit í myndbandakeppni bandarísku X-leikanna. Hann er fyrsti Evrópubúinn til þess að taka þátt í keppninni en aðeins átta bestu snjóbrettaköppum heims er boðin þátttaka. Hann hefur þegar þetta er skrifað hlotið 51% atkvæða í netkosningunni.
Keppinautur hans í úrslitunum er Louis-Felix Paradis frá Quebec í Kanada. Ríflega 48% prósent hafa kosinn Louis-Felix svo keppnin er greinilega mjög jöfn og spennandi.
Í keppninni þurfa snjóbrettakapparnir að taka upp myndband af sér leika listir sínar á snjóbretti inní borg eða bæ og er myndband Halldórs allt tekið upp hérlendis. Hægt er að kjósa myndband Halldórs hér til 29. janúar.
Þá verður Halldór einnig á meðal sextán keppenda sem taka þátt í Big Air keppni bandarísku X-leikanna sem fram fer föstudaginn 27. febrúar í bænum Aspen í Colorado–fylki en Halldór vann þá keppni árið 2010.
Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is







