Hagnaður Rio Tinto hríðfellur

Hagnaður Rio Tinto var meira en helmingi minni í fyrra en hann var árið 2010. Þetta varð til þess að Tom Albanese, æðsti yfirmaður fyrirtækisins, hafnaði bónusgreiðslum sem hann átti rétt á.

Minnkandi hagnaður er tilkominn vegna afskrifta í tengslum við kaup félagsins á Alcan álrisanum. Álverið í Straumsvík er hluti af þeirri deild Rio Tinto. Þrátt fyrir samdráttinn nam hagnaður Rio Tinto 5,8 milljörðum dollara, andvirði rúmra 700 milljarða króna. 

Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is

Tilkynna um bilaða upptöku