Hafnarfjarðarslagur í kvöld

Haukar taka á móti FH í kvöld í Hafnarfjarðarslag.

Haukar og FH mætast á Ásvöllum í 14. umferð úrvalsdeildar karla í handknattleik í kvöld. Aðeins þremur stigum munar á liðunum, en Haukar tróna á toppnum fyrir leiki kvöldsins með 20 stig, en FH hefur 17 stig í 2. sæti. Liðin hafa mæst tvisvar áður í vetur og höfðu Haukar betur í bæði skiptin.

Haukar unnu leik liðanna í deildinni, 19. desmber, 21-16 og liðin mættust svo aftur 9 dögum síðar í úrslitum deildarbikarsins. Þar höfðu Haukar einnig betur, þá 25-20. Haukar og FH mætast svo aftur í undanúrslitum bikarkeppninnar á sunnudag klukkan 15.45 og verður sá leikur í beinni útsendingu RÚV.

Þrír aðrir leikir fara fram í úrvalsdeildinni í kvöld. Grótta tekur á móti Akureyri á Seltjarnarnesi klukkan 18.30, en hinir leikir kvöldsins fara allir fram klukkan 19.30. Afturelding og Fram mætast í Mosfellsbæ og HK leikur við Val í Digranesi.

Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is

Tilkynna um bilaða upptöku