Hafa flutt 150 búslóðir til útlanda

Jón Tómas Ásmundsson er að leggja í tólftu ferðina með búslóðir Íslendinga sem hafa ákveðið að flytja af landi brott. Hann á langa ferð fyrir höndum.
Uppi á Höfða í Reykjavík eru tveir vöruflutningabílastjórar að að koma fyrir búslóðum. Þeir áætla að taka 17 til 18 búslóðir að þessu sinni í tvo bíla en síðustu tæp tvö árin hafa þeir flutt um 150 búslóðir. Þeir ráðgera að leggja í hann um miðjan mánuðinn, sækja þetta þegar fólki hentar, fara með Norrænu til Evrópu og keyra heim að dyrum.
Þeir félagar eiga langa ferð fyrir höndum og áætla að aka um 5 þúsund kílómetra á tveimur vikum.
Í Innri-Njarðvíkum er fjögurra manna fjölskylda að pakka niður og flytja til Noregs. Hún ætlar að koma tveimur brettum á Jón. Er búin að selja megnið af innbúinu, sem safnað hefur verið í mörg ár, því lágmark sé að hafa eina milljón króna til að komast út. Enda búin að selja bílinn.
Ferðinni er heitið til Stavanger á föstudaginn. Fjölskyldufaðirinn ekki búinn að fá vinnu en eiginkonan hefur ráðið sig á sambýli fyrir fatlaða. Þau fá inni hjá vinum því þau hafa ekki enn fundið húsnæði.
Dóttir þeirra, 15 ára, var í skólanum, en 12 ára sonurinn, segir að tilfinningarnar séu blendnar nú þegar nokkrir dagar eru í brottför.
Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is
Tilkynna um bilaða upptöku







