Hafa áhyggjur af Þjóðverjum

Jose Manuel Barroso, forseti framkvæmdastjórnar ESB, kynnti í dag hugmyndir um samevrópsk skuldabréf. Mynd: NordicPhoto/AFP.
Misheppnað útboð á þýskum ríkisskuldabréfum hefur valdið miklum titiringi á mörkuðum í dag og valdið áhyggjum um að Þjóðverjar eigi eftir að dragast inn í skuldakreppuna á evrusvæðinu.
Ekki tókst að selja nærri helminginn af ríkisskuldabréfunum en heildaverðmæti þeirra var um 6 milljarðar evra. Sjaldan hefur gengið jafn illa að selja þýsk ríkisskuldabréf frá því evran var tekin í gagnið. Við þetta fór lántökukostnaður Þjóðverja upp fyrir það sem er hjá Bandaríkjamönnum. Þetta olli verðlækkun á mörkuðum í Evrópu og vestanhafs og evran lækkaði í verði. Sérfræðingar á markaði segja þetta mikið áfall til viðbótar við þær áhyggjur sem fjárfestar hafi af Frökkum og að þeir dragist inn í skuldakreppuna.
Talsmaður þýska fjármálaráðuneytisins sagði á blaðamannafundi í dag að þó ekki hefði tekist að selja öll skuldabréfin þýddi það ekki að þýska ríkið ætti í erfiðleikum með að fjármagna sig.
Frakkar hafa hafa viljað að Seðlabanki Evrópu kaupi skuldabréf af evruríkjunum til að róa taugar á markaði og prenta þannig í raun peninga fyrir ríki í vanda. Því hefur Angela Merkel, kanslari Þýskalands alfarið hafnað og gerði það aftur á þýska þinginu í dag. Hún hafnaði einnig hugmyndum um útboð á sameiginlegum skuldabréfum evruríkjanna. Hún sagði það mjög óviðeigandi. Þrátt fyrir andstöðu Merkel kynnti Jose Manuel Barroso, forseti framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins, í dag áform um að búa til einmitt slík evrópuskuldabréf. Seðlabankinn væri að hefja samráð við evruríkin 17 til að meta þörfina.
Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is
Flokkar
ErlentTilkynna um bilaða upptöku







