Hættuástand í Hestfirði

Bíllinn sjálfur stendur upp á endann framan við tankinn. Mynd: Leifur Bremnes
Olíuflutningabíll Skeljungs fór út af veginum í Hestfirði í sunnanverðu Ísafjarðardjúpi í gærkvöld, og lenti í skurði. Um 39 þúsund lítrar af bensíni eru í tanki bílsins. Óttast er að nokkur þúsund lítrar hafi lekið út.
Ökumaður slapp lítið meiddur, en var fluttur til aðhlynningar á Ísafjörð. Sprengihætta var mikil, en um sexleytið tókst að rjúfa straum á bílnum að sögn Þorbjörns Sveinssonar, slökkviliðsstjóra á Ísafirði. „Klukkan 6:50 var tilkynnt að væri byrjað að dæla úr bílnum, þannig að þetta er byrjað að ganga ágætlega.“
„Verstu aðstæður sem við fáum“
Fyrsta tilkynning um atvikið barst klukkan 21:12 og þá var talað um umferðarslys. Þremur mínútum síðar var allt slökkviliðið kallað út. „Það er mikil hálka á leiðinni þannig að við vorum upp undir tvær klukkustundir að komast á staðinn,“ segir Þorbjörn. „Það er mikil hálka þarna. Það var strax óskað eftir því að Vegagerðin myndi sanda, bæði til að slökkviliðsmenn gætu fótað sig og tæki væru ekki að renna til í hálkunni. Þetta eru þær verstu aðstæður sem við fáum. Það er gler yfir allan veginn fyrir utan að það er smá vindur og mikil rigning.“
Ökumaður taldi sig hafa tekið rafmagn af bílnum með höfuðrofa en hann virkaði ekki. Því var straumur á bílnum þar til snemma í morgun. „Það var ekkert hægt að gera annað en að panta stóran kranabíl til að tryggja að bíllinn færi ekki á hliðina eða hreyfðist. Hann stóð, má segja, upp á afturendann og lá yfir tankinn, nánast að segja í lausu lofti,“ segir Þorbjörn. „Það var engin trygging, ef við færum að eiga við hann að það kæmi ekki hreyfing á hann. Allt tekur þetta tíma. Við þurftum að fá kranabíl frá Ísafirði og tryggja ástandið þannig að hægt væri að fara upp í hann, bæði til að rjúfa straum og taka rafgeymana í burtu.“ Það gerðist ekki fyrr en um klukkan sex í morgun. Þorbjörn segir að sprengjuhætta verði viðvarandi þar til búið er að dæla upp öllu eldsneyti. Hluti hafi runnið í skurði og þurfi menn að ná því upp. Fara verði mjög varlega að þessu því neisti geti leitt til sprengingar.
Maðurinn gat beðið í vöruflutningabíl sem kom að bíl hans skömmu eftir að hann lenti út af og gat maðurinn beðið í þeim bíl þar til sjúkrabíll kom á staðinn.
Mikill viðbúnaður á staðnum
Tveir sérfræðingar frá Skeljungi eru komnir á svæðið og er nú verið að undirbúa dælingu úr bílnum en það er mikið verk. Búið er dæla froðu yfir nærliggjandi svæði.
Þrír slökkviliðsbílar eru á staðnum, einn þeirra er froðubíll. Þá er kranabíll þarna og þrír tankbílar, en bensíninu verður dælt í þá. Á staðnum eru 11 slökkviliðsmenn, þrír á sjúkrabílum og tveir lögreglumenn, þannig að viðbúnaður er mikill. Mikla bensínstybbu leggur frá slysstað.
Djúpvegi hefur verið lokað frá mynni Hestfjarðar og til Súðavíkur.
Engin mannabyggð er nærri slysstaðnum, og umferð alla jafna lítil á næturnar.
Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is
Tilkynna um bilaða upptöku







