Hættan fyrir flugvélar ofmetin

Haraldur segir að ef askan sé ekki sýnileg sé varla mikil hætta á ferðum. Mynd: Getty images.

Haraldur Ólafsson veðurfræðingur segir að þær spár sem liggi til grundvallar því að flugvöllum sé lokað í Bretlandi og á Norðurlöndum ofmeti líklega gjóskumagnið. Hann gagnrýnir seinagang flugmálayfirvalda í nágrannalöndum við að mæla gjóskuna.

„Menn hafa svona trúað þessum spám svolítið í blindni það hefur viljað loða við. Og það hefur vantað að gerðar séu mælingar til að staðfesta spárnar,“ segir hann. „Það er bara þannig í þessum stóra heimi að það er dáltið löng leið frá vísindamönnum yfir til þeirra sem taka ákvarðanir um að loka flugvöllum og sú leið er miklu lengri heldur en í smærri samfélögum eins og á íslandi.“

Hann segir að askan sé vel sýnileg. „Þannig að ef það er bjart og maður sér enga ösku þá er askan vel undir þeim mörkum sem eru hættuleg fyrir flug.“

Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is

Tilkynna um bilaða upptöku