Hætta eftirliti í Sýrlandi

Þessi mynd var tekin úr myndskeiði sem sýnir íbúa í borginni Daraa flýja eftir að hersveitir Sýrlandsstjórnar réðust á fólk við jarðarför ungs manns. Mynd: Nordic Photos/AFP/Youtube.

Arababandalagið ákvað í dag að binda enda á eftirlitsstarf sitt í Sýrlandi. Þetta er gert vegna vaxandi ofbeldis í landinu.

Þetta hefur AFP-fréttastofan eftir heimildarmanni innan Arababandalagsins en formleg tilkynning hefur ekki verið gefin út.

Fyrr í dag tilkynntu forystumenn sýrlenska þjóðabandalagsins að þeir myndu óska eftir vernd Sameinuðu þjóðanna gegn hersveitum sýrlenskra stjórnvalda. Sendinefnd þjóðarráðsmanna ætlar að gagna á fund öryggisráðs Sameinuðu þjóðanna til að kynna málstað ráðsins og krefjast verndar.

Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is

Til baka