Hægja á aðildarviðræðum

Össur Skarphéðinsson, utanríkisráðherra, segir að alltaf hafi legið fyrir að eftir að viðræður hófust um sex málaflokka í desember myndi óhjákvæmilega hægjast á viðræðunum. Hann segir að verið sé að veita stjórnmálamönnum svigrúm til að hefja kosningabaráttu án truflana vegna ESB viðræðna. Mynd/RUV
Ríkisstjórnin ákvað í morgun að hægja á viðræðum um aðild Íslands að Evrópusambandinu. Engir nýir kaflar verða opnaðir fyrir kosningar í apríl og ekki verður unnið áfram með samningsafstöðu Íslands í þeim málaflokkum sem enn hafa ekki verið opnaðir, þar á meðal eru landbúnaður og sjávarútvegur.
Áfram verður hins vegar unnið með þá sextán málaflokka sem viðræður eru hafnar um. Þetta var samþykkt einróma á stuttum ríkisstjórnarfundi sem haldinn var sérstaklega um þetta mál í morgun og lagt fyrir fyrir þingflokka stjórnarflokkanna í kjölfarið.
Össur Skarphéðinsson, utanríkisráðherra, segir að alltaf hafi legið fyrir að eftir að viðræður hófust um sex málaflokka í desember myndi óhjákvæmilega hægjast á viðræðunum. Hann segir að verið sé að veita stjórnmálamönnum svigrúm til að hefja kosningabaráttu án truflana vegna ESB viðræðna.
Þingið þurfi þannig ekki að koma að gerð samningsafstaðna í erfiðum köflum á sama tíma og kosningabaráttan stendur sem hæst. Auk þess sé eðlilegt að sú ríkisstjórn, sem mynduð verði eftir kosningar, fái að setja mark sitt á samningsafstöðuna í stórum málum eins og sjávarútvegi og landbúnaði.
Aukinn þrýstingur hefur verið síðustu vikur og mánuði innan vinstri grænna að endurmeta stöðu aðildarviðræðna við ESB. Þessari skoðun lýsti Steingrímur J Sigfússon, atvinnuvegaráðherra og formaður VG, síðast í áramótakveðju sinni til flokksmanna.
Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is














