Gylfi hefur skorað í öllum deildum
Fyrst birt: 06.02.2012 09:05, Síðast uppfært: 06.02.2012 09:05

Gylfi Þór fagnar markinu gegn West Bromwich um helgina.
Knattspyrnumaðurinn Gylfi Þór Sigurðsson sem er á láni hjá Swansea í ensku úrvalsdeildinni í knattspyrnu náði merkilegum áfanga um helgina.
Eftir mark hans gegn West Bromwich í úrvalsdeildinni hefur Gylfi skorað öllum fjórum efstu deildunum á Englandi. Hann skoraði fyrir Shrewsbury og Crewe í tveimur neðstu deildunum og þá raðaði hann inn mörkum fyrir Reading í fyrstu deildinni, áður en hann var seldur til Hoffenheim í þýsku úrvalsdeildinni. Hann hefur slegið í gegn hjá Swansea frá því hann kom til félagsins í síðasta mánuði en auk þess að skora jöfnunarmark liðsins gegn WBA um helgina lagði hann upp sigurmarkið.
Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is
Tilkynna um bilaða upptöku







