Guðmundur í Brimi: Ég var plataður

Guðmundur Kristjánsson útgerðarmaður neitar því að hafa fengið felldar niður 20 milljarða króna skuldir.
Bankarnir plötuðu fyrirtæki og almenning til að kaupa hlutabréf í bönkunum, til þess eins að halda hlutabréfaverði uppi. Þetta segir Guðmundur Kristjánsson útgerðarmaður. Hann tók sjálfur þátt í leiknum, en segist ekki hafa áttað sig á því hvers lags viðskipti voru í gangi.
Í fréttum í gær var meðal annars talað um 20 milljarða niðurfellingu skulda á félög tengd Guðmundi. Hann er ekki sammála þessu og segist enga skuldaniðurfellingu hafa fengið. Allt sé þetta tilkomið vegna tveggja félaga sem hann átti hlut í, en þau keyptu hlutabréf í Straumi og Landsbankanum, með láni frá bankanum upp á tæpa 13 milljarða. Annað félagið hafi farið í þrot en samið hafi verið við bankann um hitt.
„Með því að gera samkomulag við bankann féllum við frá skaðabótamáli á bankann,“ segir Guðmundur. „Og þegar við lesum núna allar þessar skýrslur sem eru að koma fram, um innherjaviðskipti og hvernig hlutabréfaverði var haldið uppi, þá fýkur í mann. Hvernig bæði almenningur og fyrirtæki voru plataðir í þessum bankahlutabréfakaupum.“
Guðmundur segir að það hafi verið mikil pressa frá bankanum að kaupa og vera þátttakandi í viðskiptunum. Eftir á blasi auðvitað við að tilgangurinn hafi verið að halda uppi röngu hlutabréfaverði.
„Við gerðum okkur ekki grein fyrir því þá. En þegar fór að líða seint á árið 2008 fór okkur að líða illa með þetta. Og vildum selja, en það gekk ekki eftir. Auðvitað líður manni illa að hafa farið í svona gjörning en þetta er eitthvað sem maður tók ákvörðun um og situr uppi með.“
Guðmundur segist í raun hafa verið bréfberi, rannsóknarskýrslan sýni það glögglega. Spurningunni hvort hann sé með þessu einfaldlega að lýsa markaðsmisnotkun svarar hann: „Ja, þetta er það sem maður les út úr rannsóknarskýrslu Alþingis og því sem Sérstakur saksóknari er að tala um í dag. En auðvitað vissi maður þetta ekki á sínum tíma.“
Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is
Tilkynna um bilaða upptöku







