Guðmóðir Whitney slegin

Fréttir af andáti bandarísku söngkonunnar Whitneyar Houston, nær yfirskyggja aðrar fréttir í heimspressunni. Andlátsfregn hennar er á forsíðum flestra miðla og er meðal þeirra sem víðast er mest lesin.

Houston fannst látin á hótelherbergi í Los Angeles í gær. Guðmóðir hennar soul söngkonan Aretha Franklin sagðist slegin og vart geta trúað því að Whitney væri dáin. Svipaðan vitnisburð er víða að finna.

Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is

Flokkar

Tónlist, Erlent

Tilkynna um bilaða upptöku