Guðjón Valur þriðji markahæstur

Guðjón Valur Sigurðsson, fyrirliði íslenska landsliðisins, er sem stendur í þriðja sæti yfir markahæstu leikmenn Evrópumótsins í handknattleik í Serbíu en hann hefur skorað 30 mörk í fjórum leikjum.

Makedóníumaðurinn Kiril Lazarov er efstur með 43 mörk og Svíinn Niclas Ekberg er í öðru sæti með 31 mark en báðir hafa þeir leikið fimm leiki og á Guðjón Valur því leik til góða.

Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is

Tilkynna um bilaða upptöku