Landsliðsmaðurinn í handbolta, Guðjón Valur Sigurðsson þarf að fara í aðgerð á hné og verður að öllum líkindum frá keppni næstu 2-3 mánuðina. Guðjón hefur átt við þrálát meiðsli að stríða í hné undanfarin ár og er svo komið að nauðsynlegt þykir að senda hann í aðgerð til að hann fái bót meina sinna. Guðjón sagðist í samtali við fréttastofu vonast til að ná lokaleikjum tímabilsins með liði sínu, Rhein Neckar-Löwen í Þýskalandi sem situr í fimmta sæti deildarinnar og má illa við fjarveru Guðjóns.
frettir@ruv.is
Handbolti | Innlendar fréttir