Guðjón Valur í úrvalsliði EM

Guðjón Valur Sigurðsson, fyrirliði íslenska landsliðsins í handknattleik, er í úrvalsliði Evrópumótsins sem vinstri hornamaður en liðið var tilkynnt nú fyrir skemmstu. Guðjón Valur skoraði 41 mark fyrir íslenska liðið í keppninni og er sem stendur í fjórða sæti yfir markahæstu menn mótsins.
Besti leikmaður keppninnar var valinn Momir Ilic úr liði Serbíu og Spánverjiinn Virtan Morros var valinn besti varnarmaðurinn. Kikil Lazarov var markahæstur með 61 mark og setti hann nýtt met yfir flest skoruð mörk í lokakeppni Evrópumótsins en gamla metið átti Ólafur Stefánsson sem skoraði 58 mörk á í lokakeppni EM árið 2002.
Úrvalslið keppninnar:
Besti vinstri hornamaður: Guðjón Valur Sigurðsson, Ísland
Besti markvörður: Darko Stanic, Serbía
Besta vinstriskytta: Mikkel Hansen, Danmörk
Besti leikstjórnandi: Uros Zorman, Slóvenía
Besta hægriskytta: Marko Kopljar, Cróatía
Besti línumaður: Rene Toft Hansen, Danmörk
Besti hægri hornamaður: Christian Sprenger, Þýskaland
Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is
Tilkynna um bilaða upptöku







