Guðjón Baldvinsson til Halmstad

Guðjón Baldvinsson
Knattspyrnumaðurinn, Guðjón Baldvinsson, leikmaður Íslands- og bikarmeistara KR, hefur komist að samkomulagi við sænska úrvalsdeildarliðið, Halmstad. Guðjón mun síðar í dag skrifa undir þriggja ára samning við félagið. Þetta kemur fram á twitter-síðu Guðjóns.
Guðjón er samningsbundinn KR út árið 2013 og því þurfti sænska liðið að kaupa leikmanninn af vesturbæjarliðinu. Ekki hefur ekki fengist uppgefið hversu mikið Halmstad greiddi fyrir Guðjón en í samtali við fréttastofu RÚV sagði Kristinn Kjærnested, formaður knattspyrnudeildar KR, menn þar á bæ sátta með kaupverðið.
Guðjón lék 20 leiki með KR í deildinni síðasta sumar og skoraði í þeim leikjum átta mörk.
Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is
Tilkynna um bilaða upptöku







