Grímsstaði á Fjöllum í þjóðareign



  • Prenta
  • Senda frétt

156 einstaklingar rita undir auglýsingu sem birtist í dagblöðum í dag. Þar er þess krafist að Grímsstaðir á fjöllum verði í þjóðareign. Fremst á undirskriftalistanum er Vigdís Finnbogadóttir, fyrrverandi forseti Íslands.

Í auglýsingunni segir að stjórnvöldum beri að standa vörð um eignarhald og umráð landsmanna yfir óbyggðum Íslands, þar á meðal bújörðum sem teygi sig inn á hálendið eða hafi sérstöðu í huga þjóðarinnar af landfræðilegum, sögulegum og menningarlegum ástæðum. Þeir sem skrifa undir auglýsinguna skora á Alþingi og ríkisstjórn að marka skýra stefnu í þessa veru og ákveða hvaða jarðir í eigu ríkisins skuli aldrei selja og að ríkið kaupi hliðstæðar jarðir til að tryggja að þær haldist í þjóðareign.

Meðal þeirra sem skrifa undir auglýsinguna eru fyrrverandi þingmenn og ráðherrar, fræðimenn og rithöfundar, prestar og íþróttamenn. Þar má meðal annarra finna fyrrverandi ráðherra og þingforseta úr flestum flokkum: Hjörleif Guttormsson, Eið Svanberg Guðnason, Ólaf G. Einarsson, Ingvar Gíslason, Guðrúnu Helgadóttur, Halldór Blöndal, Ragnar Arnalds og Guðna Ágústsson auk fleiri fyrrverandi þingmanna.

Á listanum eru tónlistarmenn á borð við Björk Guðmundsdóttur og Pál Óskar Hjálmtýsson, landsliðsfyrirliðinn í handknattleik Ólafur Stefánsson og stjórnlagaráðsfulltrúinn Gísli Tryggvason. Þar er einnig að finna fjölda rithöfunda og skálda, þeirra á meðal Vigdísi Grímsdóttur, Jón Kalman Stefánsson og Þorstein frá Hamri. Þarna sameinast líka fyrrverandi ritstjórarnir af Morgunblaðinu Matthías Johannessen og Styrmir Gunnarsson og Kjartan Ólafsson, fyrrverandi ritstjóri Þjóðviljans. 

 

Meðal þeirra sem rita nafn sitt á auglýsinguna eru Ólafur Stefánsson, fyrirliði landsliðsins í handknattleik, Haraldur Blöndal, fyrrum þingforsetarnir Guðrún Helgadóttir og Halldór Blöndal, tónlistarmennirnir Björk Guðmundsdóttir og Páll Óskar Hjálmtýsson.

Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is

Tilkynna um bilaða upptöku