Good Angels áfram í Evrópukeppninni
Fyrst birt: 01.02.2012 22:36, Síðast uppfært: 01.02.2012 22:37

Helena Sverrisdóttir skoraði 12 stig og tók 7 fráköst fyrir Good Angels Kosice frá Slóvakíu sem vann Frisco Brno í lokaumferð riðlakeppninnar í Evrópukeppni kvenna í körfuknattleik.
Good Angels tryggði sér með sigrinum þriðja sæti C-riðils en efstu fimm liðin úr hverjum riðli komast áfram í útsláttarkeppnina.
Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is
Tilkynna um bilaða upptöku







