Góð byrjun í Norðurá



  • Prenta
  • Senda frétt

Það tók ekki nema átta mínútur að krækja í fyrsta laxinn úr Norðurá þetta sumarið. Laxveiðitímabilið hófst klukkan sjö í morgun og byrjunin var býsna fjörleg.

Það var formaður Stangveiðifélagsins sem krækti í fyrsta laxinn átta mínútur yfir sjö og ellefu mínútum síðar var hann kominn að landi. Klukkutíma eftir að Bjarni náði sínum laxi við Laxfoss náðust tveir aðrir, annar þeirra á sama stað.

Á hádegi voru laxarnir orðnir átta sem telst alls ekki slæm byrjun á veiðisumrinu.

Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is

Tilkynna um bilaða upptöku