Prenta frétt

Senda frétt Hlusta á frétt

,,Glórulaust rugl" í Jurshevski

Gylfi Magnússon, efnahags-og viðskiptaráðherra, svarar spurningum erlendra fjölmiðla í Iðnó.
Gylfi Magnússon, efnahags-og viðskiptaráðherra.
Efnahags- og viðskiptaráðherra segir málflutning Alex Jurshevski, sérfræðings í skuldavanda þjóða, vera glórulaust rugl. Jurshevski ráðleggur Íslendingum að taka ekki fleiri lán.

Alex Jurshevski var gestur Egils Helgasonar í Silfri Egils í gær. Hann sagði að tækju Íslendingar fleiri lán yrðu vaxtagreiðslur af þeim þjóðinni ofviða. 

Hann sagði að hér á landi ríkti alger upplausn og gagnrýndi að ekki væri faglega staðið að því að leysa vanda þjóðarinnar vegna skulda við önnur ríki. Það hafi verið dýrkeypt mistök að fallast á að greiða Icesave-skuldina. Þá mælir hann gegn því að þjóðin þiggi fleiri lán frá Alþjóðagjaldeyrissjóðnum, þar sem þau fari einvörðungu í að borga út jöklabréf. Vaxtagreiðslur af þessum lánum verði þjóðinni ofviða og leiði til enn meiri niðurskurðar í opinbera geiranum.

Gylfi Magnússon, efnahags- og viðskiptaráðherra, tekur ekki undir með Jurshevski. Hann segir að skuldir Íslands séu í meðallagi miðað við vestræn ríki. Nauðsynlegt sé að hafa aðgang að erlendu lánsfé þar sem skuldir hafi ekki verið greiddar. Að taka ekki lán hjá Alþjóðgjaldeyrissjóðnum sé vitlausasta hugmynd sem hann hafi heyrt lengi því þau ásamt lánunum vegna Icesave séu þau hagstæðustu. Hann telur glórulaust rugl að halda því fram að við eigum ekki að tak þessi lán hvað þá að við höfum ekki efni á að borga okkar skuldir.

Gylfi segir það ekki nema hálfan sannleik að lánin sem Íslendingar fái hjá Alþjóðagjaldeyrissjóðnum fari í að greiða út jöklabréf. Útlendingar eigi hér ekki lengur jöklabréf heldur kröfur í krónum; nokkur hundruð milljarða. Þeir þurfi einhvern tíma að fara með þá úr landi. Allar líkur séu á að aðrir séu til í að kaupa þær kröfur af þeim og eðlilegt sé að það gerist á einhverjum tíma.

Hér má horfa á viðtali Egils Helgasonar við Alex Jurshevski.


 
        

frettir@ruv.is


Senda á Facebook

6. september 2010

Streymiþjónusta