Getum lært eitt og annað af Dönum

Sigurður og Stefán sitt hvoru megin við Gylfa Arnbjörnsson í pallborði á fundinum í dag. Mynd: Brynjólfur Þór Guðmundsson.

Íslendingar geta lært eitt og annað af Dönum um hvernig staðið er að húsnæðislánum, segir Sigurður Erlingsson, framkvæmdastjóri Íbúðalánasjóðs. Meðal þess sem megi bæta er aukinn sveigjanleiki fyrir lántakendur og betri uppgreiðslumöguleikar.

Sigurður var í pallborði á fundi ASÍ um húsnæðislán þar sem Peter Jayaswal, aðstoðarframkvæmdastjóri samtaka danskra húsnæðislánveitenda, kynnti fyrirkomulagið í Danmörku. Sigurður segir ýmislegt sem Íslendingar geti lært af Dönum. Húsnæðislánakerfið danska sé gamalt og í því ríki agi. „Ákveðnar reglugerðir og ákveðinn rammi sem þeir hafa skapað sem kannski er ekki að finna hér á landi. Þar getum við lært ýmsa hluti, ég held að það sé klárlega eitthvað sem við getum tekið upp.“

Hins vegar sé hluti af danska kerfinu sambærilegur því sem hér er. Til dæmis sé Íbúðalánasjóður fjármagnaður á markaði og kjörin þar spegluð til viðskiptavina sjóðsins, líkt og Danir gera. „Þeir eru með uppgreiðslumöguleika og töluverðan sveigjanleika í lánstíma og þar gætum við vissulega gert betur.“

Íbúðalánasjóður hefur fengið leyfi til að veita óverðtryggð lán og Sigurður segir koma til greina að skoða leiðir til að auka sveigjanleika á uppgreiðslu, og þar með möguleika fólks til að endurfjármagna lán sín á hagstæðari kjörum. Eins þótti honum athyglisvert hvernig kveðið sé á um hámarksveðhlutfall og verðmat á fasteignum.

Stefán Halldórsson, ráðgjafi Landssambands lífeyrissjóða í húsnæðismálum tekur undir með því sem Sigurður segir um aukinn sveigjanleika. Eins hafi lífeyrissjóðir kallað eftir því að fjármálamarkaðir verði fjölbreyttari og dafni. „Sérstaklega upp á síðkastið hefur það verið galli við íslenska markaðinn hvað hann er einhæfur, hvað fjölbreytni er lítil og hvað valmöguleikar fyrir fjárfesta hafa verið takmarkaðir.“

brynjolfur@ruv.is

Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is

Til baka