Gera glæpaþætti sem gerast á Siglufirði
Fyrst birt: 20.12.2012 09:04, Síðast uppfært: 20.12.2012 09:30

Ragnar Jónasson höfundur bókanna þriggja og Þorvaldur Davíð Kristjánsson leikari.
Sjónvarpsþættir verða gerðir byggðir á bókum Ragnars Jónassonar; Snjóblindu, Myrknætti og Rofi. Þorvaldur Davíð Kristjánsson leikari tryggði sér kvikmyndaréttinn á bókunum nýverið og hyggst sjálfur fara með aðalhlutverkið í þáttunum, sem framleiddir verða hjá Sagafilm.
Bækurnar gerast allar á Siglufirði og sú nýjasta einnig í Héðinsfirði. Þorvaldur Davíð og Sagafilm hafa einnig fengið heimild til að gera sjálfstæða þætti byggða á aðalpersónunni, Ara Þór.
Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is














