Gensheimer bestur í þýsku deildinni

Þjóðverjinn Uwe Gensheimer var valinn leikmaður ársins í Þýskalandi í árlegu vali þýska handknattleikstímaritsins Handballwoche.

Gensheimer er lærisveinn Guðmundar Guðmundssonar hjá Rhein-Neckar Löwen í þýsku deildinni auk þess sem hann spilar lykilhlutverk í þýska landsliðinu, en hann spilar í stöðu vinstri hornamanns. Leikmennirnir í öðru og þriðja sæti í valinu eru hjá Kiel undir stjórn Alfreðs Gíslasonar en þeir eru Tékkinn Filip Jicha og Þjóðverjinn Christian Zeitz. 

Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is

Tilkynna um bilaða upptöku