Gengur hægt að dæla úr bílnum

Mynd: Leifur Bremnes.
„Ákkurat á þessari stundu er búið að dæla frá tvö til fjögur þúsund lítrum úr tanknum. Það gengur frekar hægt,“ segir Þorbjörn Sveinsson, slökkviliðsstjóri á Ísafirði, um starf slökkviliðs í Hestfirði þar sem olíuflutningabíll fór út af veginum.
Þegar bíllinn fór út af veginum í gær voru 39 þúsund lítrar af eldsneyti í tanki hans. „Eitthvað hefur lekið út. Við sjáum ekki hversu mikið. Við sjáum það þegar dælingu er lokið,“ segir Þorbjörn, sem á von á því að slökkvilið verði á staðnum fram eftir degi við að dæla úr tankinum og eftir það taki við að fjarlægja bílinn og tankinn.
Aðstæður eru mjög erfiðar á vettvangi. Þar er glerhált á vegum, dálítill vindur og mikill rigning. Þetta gerir mönnum erfitt fyrir við björgunarstarf og ofan á þetta bætist að sprengihætta er af eldsneytinu. Leitað var eftir aðstoð Vegagerðarinnar þar sem fyllsta ástæða þótti til að salta svo menn héldust á fótunum og vinnutæki rynnu ekki til.
Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is
Tilkynna um bilaða upptöku

Hættuástand í Hestfirði 





