Gengið fellur enn

Krónan lækkaði um 0,6 prósent í gær og bættist það við talsverða lækkun dagana á undan. Jón Bjarki Bentsson, sérfræðingur hjá Greiningu Íslandsbanka segir að ekki sé hægt að útiloka að krónan haldi áfram að veikjast.
„Eftir þriggja vikna stöðuga krónu hefur veikingin orðið verulega núna á nokkrum dögum og á meðan greinilega einhverjir eru að kaupa gjaldeyri í töluverðu magni þá er ekki hægt að segja hvenær þessu slotar,“ segir Jón Bjarki. „Markaðurinn er náttúrlega býsna lítill. Það þarf ekki nema svona hóflega stærð af láni, um leið og það fer að telja í milljörðum þá er gjaldeyrisflæðið, sérstaklega á veturna ekki nóg til þess að sjá þeim sem þurfa að kaupa gjaldeyri fyrir þeim gjaldeyri sem þeir þurfa nema að krónan veikist.“
Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is
Tilkynna um bilaða upptöku







