Á Stórutjörnum í Þingeyjarsveit er boðið upp á gönguferðir í sauðskinnsskóm. Reynt er að líkja eftir aðstæðum smalans hér á árum áður. Það er mikil upplifun að ganga um á sauðskinnskóm en snertingin við náttúruna með nýjum skynfærum, það er að segja iljunum er ótrúleg. Þrjár systur gefa nú almenningi kost á því að upplifa hvernig forfeður okkar fundu fyrir hverri þúfu eða misfellu í jörðinni.
Hægt er að velja um tvær vegalengdir, styttri er um klukkutími, sú lengri er tveir tímar upp í Stóradalsfjall.
frettir@ruv.is