Geir hyggst áfrýja

Geir H. Haarde, fyrrverandi forsætisráðherra, hyggst áfrýja Landsdómsmálinu til Mannréttindadómstóls Evrópu, tapi hann því á forsendum, sem hann er ekki sáttur við. Þetta kom fram í viðtali við Geir í Kastljósinu fyrr í kvöld.

Geir sagði það hafa komið sér á óvart, að hann hefði ekki verið kallaður fyrir þingmannanefndina sem fjallaði um Skýrslu rannsóknarnefndar Alþingis. Landsdómur hefði komist að þeirri niðurstöðu að þingmannanefndin hefði í reynd aldrei rannsakað málið.

Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is

Tilkynna um bilaða upptöku