Prenta frétt

Senda frétt

Gefa upp persónulegar upplýsingar

Dæmi eru um að fólk hafi hætt við að tala við lækni hjá nýrri Heilbrigðisstofnun Vesturlands þar sem það hefur ekki verið tilbúið til að ræða sína sjúkdóma við starfsmenn Neyðarlínunnar. Gerð er krafa um að þeir sem hringja inn gefi upp kennitölu og erindi við lækni áður en þeir fá samband.

Eins og fram hefur komið í Svæðisútvarpi Vesturlands og Vestfjarða hefur verið tekin upp samræmd símsvörun fyrir allar starfsstöðvar Heilbrigðisstofnunar Vesturlands. Eftir að hefðbundnum opnunartíma lýkur á hverjum stað er öllum símtölum í síma vakthafandi lækna svarað hjá Neyðarlínunni, 112. Þetta er tilraunaverkefni til sex mánaða og bundið við starfssvæði Heilbrigðisstofnunar Vesturlands sem nær, auk Vesturlands á Strandir og Vestur Húnavatnssýslu. Ætlunin er að þegar fram í sækir verði þetta fyrirkomulag tekið upp á öllu landinu.

Samkvæmt upplýsingum Svæðisútvarpsins hefur þessi tilraun farið vel af stað. Þó með þeirri undantekningu að nokkurrar óánægju gætir með að sjúklingar þurfi að gefa starfsmönnum Neyðarlínunnar upp persónulegar upplýsingar áður en þeir fá samband við lækni.
Þegar hringt er í vaktsíma, heilsugæslunnar í Ólafsvík til dæmis, eftir lokun skiptiborðs, svarar starfsmaður Neyðarlínunnar. Þegar beðið er um samband við lækni spyr starfsmaður Neyðarlínunnar um kennitölu og síðan um hvaða erindi viðkomandi eigi við lækninn. Ekki er hægt að fá samband við lækni nema þessar upplýsingar séu gefnar upp. Þessu kunna sumir illa og eru dæmi um að fólk hafi hætt við og beðið til morguns með að hafa samband.

Einn sem hafði samband við fréttastofu sagði allt er varðaði sín veikindi vera trúnaðarupplýsignar milli sín og læknis. Hann kvaðst líka efast um að þessar kröfur stæðust lög um persónuvernd.

Svæðisútvarpinu er kunnugt um málið sé komið inn á borð Landlæknis.

Þórir Bergmundsson, lækningaforstjóri, heilbrigðisstofnunar Vesturlands sagði í samtali við Svæðisútvarpið að það væri eðlilegt að fólk gæfi upp erindið, en um það væri beðið til að koma í veg fyrir að verið væri að ónáða lækna að ástæðulausu. Hann sagði ekki beðið  um nákvæma sjúkdómslýsingu, heldur væri bara verið að fá á hreint að um sjúkdóm væri að ræða. Þórir sagði fólk ekki hafa neitt að óttast enda væri starfsfólk Neyðarlínunnar bundið trúnaði, rétt eins og læknar.


 
        

frettir@ruv.is


Senda á Facebook

29. júlí 2010

Streymiþjónusta