Garðplanta sem vert er að varast
Bjarnarkló er garðplanta sem flutt hefur verið um allan heim en er nú sumstaðar farin að vera til vandræða. Hún hefur verið skilgreind sem ágeng tegund í Evrópu því hún hefur náð fótfestu í náttúrunni og ógnar þar líffræðilegri fjölbreytni.
Manninum stafar líka hætta af henni vegna þess að safinn í stilkum hennar og blöðum er eitraður. Ef hann berst á húð og á hana skín ljós getur orðið mikill bruni á húðinni. Vitað er um nokkur tilfelli hér á landi þar sem fólk hefur brennt sig alvarlega. Fyrir þremur árum brenndist drengur á höndum og fótum þegar hann var að leika sér með stilka bjarnarklóarinnar á sólríkum degi. Hann lá í tíu daga á spítala á meðan brunasárin á útlimum hans voru meðhöndluð.
Bjarnarkló hefur ekki náð mikilli útbreiðslu á Íslandi en hana má þó finna í görðum og á stöku stað í náttúrunni. Þó er talið líklegt að með hlýnandi loftslagi taki hún að breiðast hraðar út. Ef svo fer getur orðið erfitt að koma böndum á hana. Víða í Evrópu er miklum fjármunum varið í að útrýma bjarnjarklónni en hér á landi er útbreiðsla hennar enn svo lítil að það þyrfti ekki að kosta miklu til við að uppræta hana.
Vertu vinur Landans á Facebook
Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is
Flokkar
LandinnTilkynna um bilaða upptöku







